Knapamerki 2

Við ætlum að halda áfram 😊

Hestamannafélagið Jökul hefur ákveðið að fara á stað með Knapamerki 2 (stigaskipt nám í reiðmennsku) núna strax eftir áramót fyrir þá nemendur sem hafa áhuga í áttunda -10 bekk  Reykholtsskóla, Kerhólsskóla og Bláskógarskóla Laugavatni vorið 2023. Kennslustaður er í reiðhöllinni á Flúðum bæði fyrir bóklega og verklega kennslu. Knapamerki 2 verður líka kennt sem val í Flúðaskóla.  Hægt verður að fá þetta nám metið sem val í Reykholtsskóla og Bláskógarskóla (haust eða vor).
Nám í Knapamerkjum er í dag metið inn sem val í Fjölbarautarskóla Suðurlands og í Menntaskólanum á Laugarvatni.

Hámarks fjöldi í hóp eru fimm, þannig að það komast tíu krakkar í heildina á þessi námskeið.
Kennari námskeiðs er Maiju Varis

Forsenda þess að geta skráð sig á námskeiðið er að hafa lokið Knapamerki 1.

Fyrirkomulag námskeið:

Kennt einu sinni í viku 2.x 40 mín frá 16:30– 18:20 á mánudögum og frá 17-18:20 á fimmtudögum.
Hestar, reiðtygi, hjálmar er á staðnum
Kostnaður er 10.000 krónur fyrir nemanda
Innifalið er bókin Knapamerki 2
Kennt er frá 2 vikunni í janúar fram í miðjan mars.

Nánari upplýsingar um Knapamerkin fá finna inná www.knapamerki.is og hjá Oddrúnu í síma 849-8088 eða jokull@hmfjokull.is

Skráning á mánudagsnámskeiðið er : https://www.sportabler.com/shop/hfjokull/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MTU3ODI=?

Skráning á fimmtudagsnámskeiðið er:

https://www.sportabler.com/shop/hfjokull/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MTU3ODM=?

 

Stjórn hestamannafélagsins Jökuls hefur mikin áhuga á að koma skipulagðri kennslu í hestamennsku sem valgrein inní grunnskólana. Þetta verkefni gæti auðveldað nemendum aðgengi að hestum ef þau eiga ekki hesta og þátttöku með það að markmiði að kynna þeim heim hestaíþróttarinnar. Fyrir þá sem eiga hesta bætir þetta nám kunnáttu þeirra og færni í hestaíþróttinni.

 

ATH ef næst að fylla báða hópana munum við að öllum líkindum bjóða aftur uppá Knapamerki 1.

Með bestu kveðju
Stjórn Hestamannafélagsins Jökuls, Oddrún og Maiju.