Hestamannafélagið Jökull
Hestamannafélagið Jökull var stofnað þann 1.júlí 2021. Félagið byggir á gömlum grunni sem lagður var af hestamannafélögunum Loga, Smára og Trausta. Starfssvæði félagsins nær yfir Skeiða og Gnúpverjahrepp, Hrunamannahrepp, Bláskógabyggð og Grímsnes og Grafningshrepp svo ljóst er að vinna þarf ötullega að því að ná til sem flestra á stóru svæði.
Markmið æskulýðsnefndar er að vinna að öflugu og fjölbreyttu æskulýðsstarfi og reyna að ná til þeirra sem vilja stunda hestamennsku sem keppnisíþrótt og líka sem félagsstarf og áhugamál. Með fjölbreyttu starfi reynum við eftir fremsta megni að stuðla að nýliðun meðal ungu knapanna okkar um leið og við gerum okkar allra besta í að halda vel utan um þá sem eru lengra komnir og upp í unglinga og ungmennaflokk.
Gott starf æskulýðsnefndar er gríðarlega mikilvægt því uppbygging og framtíð félagsins byggist á æskunni okkar.
Framkvæmdastjóri Jökuls er Karen María Gestsdóttir og formaður er Bragi Viðar Gunnarsson
Skýrslu æskulýðsnefndarinnar má lesa í heild sinni hér og eru allir hvattir til að opna skjalið og kynna sér það frábæra starf sem nefndarkonur hafa unnið síðasta árið: Skýrsla æskulýðsnefndar2025
