Stjórn hestamannafélagsins hefur ákveðið að gera breytingar á skipulagi félagsins sem snúa að stjórnun stærri verkefna, svo sem Gæðingamóts, Uppsveitadeildar, árshátíðar, Skötuveislu Jökuls o.fl.
Í því felst að staða framkvæmdastjóra verður lögð niður og tekið upp nýtt fyrirkomulag sem er á þann veg að skipaður verður sérstakur verkefnastjóri fyrir hvert stærra verkefni eða viðburð á vegum félagsins. Sá verkefnastjóri mun „draga vagninn“, skipuleggja verkefnið, annast verkstjórn og sjá um samskipti hverju sinni. Með þessu er verið að gera tilraun til að skipta verkefnum betur á milli einstaklinga og dreifa álagi.
Upplýsingar um hver gegnir hlutverki verkefnastjóra hverju sinni, ásamt nauðsynlegum samskiptaupplýsingum og öðru viðeigandi, verða kynntar sérstaklega í tengslum við hvert verkefni.
Umsjón með vefsíðu félagsins, Sportabler og samfélagsmiðlum verður framvegis í höndum stjórnarmeðlima. Jafnframt er stefnt að því að æskulýðsnefndin verði sjálfbærari í slíkum verkefnum. Fyrirspurnum má beina á netföngin jokull@hmfjokull.is og stjorn@hmfjokull.is.
Reiðhallarstjórn mun áfram sinna utanumhaldi reiðhallarinnar og aðrar nefndir halda áfram sínum mikilvægu hlutverkum án breytinga.
Stjórn félagsins vill að lokum koma á framfæri innilegu þakklæti til fráfarandi framkvæmdastjóra fyrir hennar mikilvæga framlag til félagsins og ánægjulegt samstarf.
