Ágætu félagsmenn og þeir sem nota reiðhöllina. Þar sem hestamennskan er að fara á fullt hér í Uppsveitum viljum við vekja athygli á hesthúsinu í höllinni.
Aðeins er leyfilegt að vera með einn hest í hverri stiu NEMA ef hestarnir þekkjast og eru vanir að vera saman . ( á við þegar eru reiðnámskeið, mót eða opnir tímar í höllinni ).
Ef þessu er ekki fylgt er hætta á slysum á hrossum.
Með hestakveðju
Oddrún