Firmakeppni Jökuls verður haldin 1. maí á Flúðum að þessu sinni. Til stóð að halda keppnina í Hrísholti en aðstæður leyfðu það því miður ekki.
Keppnin byrjar kl 13:00 og mun skemmtinefndin sjá um að grilla pylsur ofaní keppendur og gesti 🥳
Mótið er skemmtimót þar sem gleðin ræður ríkjum og hvetjum við alla félagsmenn sem eru með hest á járnum að mæta og gera sér dagamun 🦄
Skráning á staðnum!
Mótið er opið fyrir alla og ekkert skráningargjald
Riðin verður forkeppni á hringvellinum eftir þul (T7) og svo úrslit. Í T7 er fyrst riðið hægt tölt uppá aðra höndina og svo frjáls ferð uppá hina.
Dagskrá:
1. Pollaflokkur
2. Barnaflokkur
3. Unglingaflokkur
4. Ungmennaflokkur
5. Heldri konur og menn (60 ára og eldri)
6. Minna vanir
7. Meira Vanir
Nú er verið að safna firmum fyrir mótið og þökkum við þeim sem nú þegar hafa viljað styrkja mótið. Þeir einstaklingar og fyrirtæki sem vilja bætast í hópinn geta sent email á stjorn@hmfjokull.is með upplýsingum um nafn og kennitölu. Firmað kostar 5000kr.
Hlökkum til að sjá sem flesta! 😁🎉