Helgina 13.–14. júní fór Hestamannafélagið Jökull í sína fyrstu eiginlegu hestaferð  og var förinni heitið upp í Klett á Flóa- og Skeiðamannaafrétti og er óhætt að segja að ferðin hafi tekist vel.

Um 20 hestamenn af öllu starfssvæði félagsins komu saman og nutu tveggja daga í frábæru veðri, góðum félagsskap og fallegri náttúru. Það er gleðiefni að félagsmenn úr ólíkum byggðarlögum geri sér ferð,  kynnist betur og eigi saman góðar stundir.

Gistingin í Kletti var notaleg og heimafólk tók vel á móti hópnum. Þátttakendur fengu meðal annars að hlýða á fróðlegar sögur um staðhætti, örnefni og atburði sem tengjast svæðinu en slíkt gerir ferðir eftirminnilegri.

Kvöldvakan var ekki síður vel heppnuð. Þar lagði hver og einn sitt af mörkum með því að flytja kvæði eða syngja lag frá sínu heimasvæði. Það skapaði skemmtilega stemningu og minnir á hversu rík hefð og menning tengist bæði hestamennskunni og sveitunum okkar.

Stjórn Hestamannafélagsins Jökuls vill færa skipuleggjendum ferðarinnar, þeim Huldu í Hrepphólum og Sigrúnu í Fossnesi, innilegar þakkir fyrir metnaðarfullan undirbúning og afar vel heppnaða framkvæmd. Slík sjálfboðavinna er ómetanleg og á stóran þátt í því að efla félagslífið og skapa þau tækifæri sem gera starf félagsins svo öflugt.

Við hlökkum nú þegar til næstu hestaferðar.