1. Vetrarmót Jökuls verður haldið næsta laugardag þann 25. Mars.

Skráning í alla flokka fer fram gegnum Sportfeng.

Við byrjum með Pollastund kl 12.30 inni í reiðhöll og svo úti á hringvelli ef veður og færð leyfir með barnaflokk strax þar á eftir. Síðan unglingaflokk og svo koll af kolli.

Riðin verður forkeppni á hringvellinum eftir þul (T7) og svo úrslit. Í T7 er fyrst riðið hægt tölt uppá aðra höndina og svo frjáls ferð uppá hina. Í barnaflokk má sýna tölt eða brokk.

Eftirfarandi flokkar verða í boði: Pollaflokkur (frítt)

Barnaflokkur (1500kr)

Unglingaflokkur (1500kr)

Ungmennaflokkur (1500kr)

Fullorðinsflokkur 1. Flokkur (2000 kr)

Fullorðinsflokkur 2. Flokkur (2000 kr)

Skráning:  https://sportfengur.com/#/skraning/motshaldari

Í ár verður haldin stigakeppni í vetramótum og stigahæsti knapar verðlaunað í síðustu vetraleikum í öllum flokkum.

Sjáumst hress á Vetrarmótum á Flúðum Kv. Mótanefnd