Á fyrsta kvöldi Uppsveitadeildarinnar var stjórnendum hlaðvarpsins, Uppsveitakastsins, boðið að koma og horfa á keppni kvöldsins.  Þeir Árni og Jónas mættu gallvaskir og fylgdust með glæsilegum hestum og prúðbúnum knöpum keppa í fjórgangi.
Við hvetjum alla til að hlusta á hlaðvarpið en þar fjalla þeir um kvöldið og upplifun sína – og fengu í viðtal þau Þorvald Loga í Miðfelli og Malin Anderson sem eru ungir og upprennandi knapar og tamningamenn, sem eiga framtíðina sannarlega fyrir sér.  Hlaðvarpið  er að finna á öllum helstu streymisveitum:  https://open.spotify.com/show/0wYsiKFEZ1NhbK4hfaW1Nm?fbclid=IwY2xjawQxWoNleHRuA2FlbQIxMABzcnRjBmFwcF9pZBAyMjIwMzkxNzg4MjAwODkyAAEe_sGXHAMsRKeMAazR-Pe4pqEi1w5I3Biztbn862bwoUSILLfd8eb0ACPRdJ0_aem_dtARYlkkWenC1bRHG-qoLQ