Skráning á þetta skemmtilega mót er í fullum gangi og lokar mánudaginn 24.júlí. Skráning er gild um leið og greiðsla er móttekin og staðfestingu þarf að senda á jokull@hmfjokull.is

Mörg fyrirtæki eru að styrkja mótið og eru 100.000 fyrir fyrsta sæti í öllum fullorðinsflokkunum.
Í yngri flokkunum eru einnig vegleg verðlaun í formi gjafabréfa og annarra vininga.

Á næstu dögum munum við kynna þau fyrirtæki sem munu styrkja mótið.

Hafið samband ef það eru einhverjar spurningar vakna.

Fjölmennum á eitt skemmtilegasta gæðingamót ársins, lofum frábærum hestum og skemmtilegu fólki.

Gæðingamót Jökuls verður haldið dagana 27. – 30.júlí næstkomandi.

Mótið verður með hefðbundnu sniði.
Flokkar í boði:
A- flokkur
A-flokkur áhugamanna
A- flokkur ungmenni
B-flokkur
B- flokkur áhugamanna
B- flokkur ungmenna
unglingaflokkur
barnaflokkur
tölt T3 – 18 ára og eldri
tölt T3 – 17 ára og yngri, tölt
T7 – börn
T7 – fullorðna
100m skeið

Skráningargjald: í eldri flokka og skeið er 7.000 kr og í yngri flokka 5.000 kr.

 

PENINGAVERÐLAUN ERU Í FULLORÐINSFLOKKUM MÓTSINS OG VEGLEG VERÐALUN Í ÖLLUM YNGRI FLOKKUM

 

BÚIÐ ER AÐ OPNA FYRIR SKRÁNINGAR Á sportfeng.com

MIKILVÆGT AÐ SENDA STAÐFESTINGU Á GREIÐSLU Á NETFANGIÐ jokull@hmfjokull.is TIL AÐ SKRÁNING TELJIST GILD

 

Margir styrktaraðilar koma að þessu móti og verða þeir auglýstir í aðdraganda mótsins.

 

Takið helgina frá, fjölmennum á Flúðir á þetta skemmtilega mót.

Nánari upplýsingar um mótið má fá með að senda póst á jokull@hmfjokull.is