Reiðnámskeið í Miðengi fyrir börn og unglinga.

Reiðnámskeið Hestamannafélagsins Jökuls verður haldið fyrir börn og unglinga
dagana 11. – 14. ágúst og er kennari að þessu sinni Thelma Dögg Tómasdóttir.
Námskeiðið verður haldið í Miðengi.

Aðstæður haga því þannig að þessu sinni að ekki verður hægt að geyma hrossin í
Miðengi milli daga.

Það þarf að hafa með sér hest og það sem honum fylgir og er aldursbilið c.a. 5-15 ára.
Nánari tímasetningar koma þegar skráningar liggja fyrir en kennt verður
seinnipartinn og á kvöldin.
Látið endilega fylgja skráningu aldur barns og einnig er gott að fá að vita ef börnin eru alveg óreynd.

Verð:2000

Skráning fer fram á Sportabler og er skráningarformið hér:https://www.abler.io/shop/hfjokull/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MzA5NDA=?

Skráningu lýkur 9. ágúst.

Reiðnámskeiðinu lýkur með fjölskyldureiðtúr frá Laugarvatni í Kringlumýri þar sem
verður boðið í pylsugrill á fimmtudeginum og gistingu í Kringlumýri fyrir þá sem
vilja og eins og húsrúm leyfir.

Kv. Æskulýðsnefnd.