Á síðasta aðalfundi Jökuls, þann 24. febrúar sl, var ný stjórn kosin. Vilborg Ástráðsdóttir fór úr hlutverki ritara og í hlutverk formans, Ólafur gegnir áfram stöðu gjaldkera og Guðrún Karitas er áfram meðstjórnandi. Ný í stjórn eru þau Oddrún Ýr Sigurðardóttir, Hermann Þór Karlsson, Svava Kristjánsdóttir og Björn Hrannar Björnsson.
Fráfarandi stjórnarmönnum, þeim dáða dreng, Braga Viðari Gunnarssyni og þeim Ragnhildi Stefaníu Eyþórsdóttur, Svavari Jóni Bjarnasyni og Ragnheiði Eggertsdóttur þökkuð góð og trygg störf síðustu ár.
