Næsta lið sem við kynnum til leiks í Uppsveitadeild Flúðasveppa og Hmf Jökuls er lið Lögmannsstofu Ólafs Björnssonar.
Lið Lögmannsstofu Ólafs Björnssonar
Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir 22 ára, bý á Selfossi, starfa hjá NPA setri Suðurlands og þjálfa hestana mína þess á milli.
Svavar Jón Bjarnason
38 ára gamall Rafiðnfræðingur sem þjálfar hross í frítíma í Ásakoti í Biskupstungum
Finnur Jóhannesson
27 ára reiðkennari og tamningarmaður. Vinn við tamningar á Torfastöðum og er liðstjóri.
Hannes Brynjar Sigurgeirsson
33 ára sjálfstætt starfandi smiður og bóndi að Ási 2.
Ástríður Magnúsdóttir reiðkennari og tamningakona sem ræktar topp hross, hunda, geitur og framtíðarknapa í Ási 2