Reiðtúrar 2025

Á næstu vikum verða tveir kvöldreiðtúrar á vegum Hmf Jökuls.

Miðvikudagskvöldið 25. júní
Fimmtudagskvöldð 3. júlí

Miðvikudaginn 25. júní ætlum við að hittast kl 19:00 í Skaftholtsréttum. Riðið af stað á slaginu 19:30

Farinn verður hringur Skaftholtsréttir – Hamratunga – upp með Kálfá – Stórhvammur – Brandsgil – Steinsholt – Austurhlíð og svo bakatil hjá Skaftholti og inn í réttir með veginum.

Hlökkum til að sjá ykkur hress í útreiðatúrum sumarsins. Nánari auglýsingar fyrir hina reiðtúrana síðar.

Kv Útreiðanefndin