Stjórn hestamannafélagsins, skemmtinefnd og mótanefndin vilja ólm fara og gera fínt á mótssvæðinu fyrir Firmakeppnina okkar 1.maí nk. og við viljum hvetja alla til að koma með og taka til hendinni – margar hendur vinna létt verk. Mæting 18:00 – helst með garðhrífu og góða skapið.
