Borist hefur erindi til hestamannafélagsins Jökuls:
Tilkynning til hestamanna
Landeigendur á Iðu og Eiríksbakka í Bláskógabyggð hafa ákveðið að takmarka umferð hestamanna um bakka Stóru-Laxár fyrir landi bæjanna við þá sem hafa hesta sína í taumi. Umferð hestamanna þar sem hestar eru lausir í rekstri er ekki heimil. Ef hestamenn með lausa hesta í rekstri þurfa að nýta vöð á Stóru-Laxá fyrir landi Eiríksbakka er óskað eftir að þeir að hafi samband við landeigendur til að fá leiðbeiningar um hvernig staðið verði að því hverju sinni. Athygli er vakin á að góð reiðleið liggur með Skálholtsvegi.
Hestamannafélagið biðlar til félagsmanna og annarra að láta erindið berast til þeirra er mögulega nota þessa reiðleið og með öllu að virða ákvörðun landeigenda – allir hestar bundnir saman og/eða í taum.