Nú ættu árleg félagsgjöld Jökuls að birtast í heimabanka félaga. Félagsgjöldin eru mikilvægur liður í rekstri félagsins og gerir okkur kleift að halda úti öflugu og fjölbreyttu starfi fyrir félagsmenn á öllum aldri.
Við leggjum áherslu á að halda félagsgjöldum í hófi svo sem flestir geti tekið þátt og stutt við starfsemi félagsins. Margir kjósa að greiða gjaldið jafnvel þótt þátttaka þeirra sé mismikil, enda er stuðningurinn afar dýrmætur og skiptir sköpum fyrir uppbyggingu og viðhald á starfi sem nýtist bæði börnum, ungmennum og fullorðnum.
Félagsgjöldin eru að þessu sinni 11500,- fyrir 18 ára og eldri. Að þessu sinni er ekki 70 ára og eldri ekki send félagsgjöld, en það breytir ekki félagsaðild, eldri borgarar eru áfram skráðir. Þeir sem vilja samt sem áður greiða félagsgjaldið er bent á að reikningsnúmer félagsins kt. 650122-3130, reikn.: 0133-26-5353
og það er nú þannig í félagsstarfi sem þessu þá skiptir hver króna máli.
Við hvetjum alla foreldra og forráðamenn til að huga vel að skráningu barna og unglinga í félagið – skráning þeirra skiptir hvað einna mestu máli varðandi úthlutun lottótekna. Að auki er æskulýðsstarfið afar fjölbreytt og öflugt og við hvetjum alla til að kynna sér það sérstaklega.
Við viljum jafnframt benda á að þeir sem ekki hyggjast vera áfram í félaginu þurfa að skrá sig úr því fyrr en seinna, best væri ef tölvupóstur myndi berast stjorn(hjá)hmfjokull.is.
Að lokum bendum við góðfúslega á að framundan er úrtaka fyrir Landsmót og þar geta aðeins skuldlausir félagar tekið þátt.
