Stórgóð þáttaka var á fyrsta vetrarmót Jökuls, 28. febrúar sl.. Um 50 skráningar bárust og fylltu áhorfendur pallana. Í öllum flokkum komu hvert glæsiparið á fætur öðru fram og sýndu sína bestu kosti. Að vanda var boðið upp á kaffihúsastemningu á efri hæðinni og áttu margir gott spjall um áhugamálið með kaffibolla og flatköku í hönd.
Öllum þátttakendum, mótanefnd, þuli, tölvuséni og vert er þakkað fyrir frábæran dag. Næsta vetrarmót er 21.mars – takið daginn frá tilvonandi þátttakendur og ekki síður áhorfendur. Við minnum einnig á fyrsta kvöldið okkar í Uppsveitadeildinni – föstudaginn 6.mars og hvetjum alla til að mæta og fylla reiðhöllina okkar.
Úrslit í öllum flokkum urðu eftirfarandi:
Í pollaflokk var ein skráning en þær stöllur Sigrún Margrét 7 ára og Sunneva 7vetra, báðar frá Fossi, buðu áhorfendum upp á einkar fágæta og fallega sýningu.
Fjórgangur V5 * Barnaflokkur
1. Sigrún Freyja Einarsdóttir á Silfurtoppi frá Kópavogi
2. Aron Freyr Ingvarsson á Blika frá Dverghamri
3. Garðar Jóhannes Elvarsson á Þórbergi frá Túnsbergi
4. Bjarki Þór Ingvarsson á Dömu frá Fjalli 2
5. Ingibjörg Elín Traustadóttir á Bylgju frá Hlíðartúni
6. Hildur Elísabet Kristjánsdóttir á Seif frá Einiholti
Fjórgangur V2 * Unglingaflokkur
1. Árný Sara Hinriksdóttir á Mola frá Aðalbóli
2. Svava Marý Þorsteinsdóttir á Sæmd frá Syðra Langholti
3. Emma Rún Sigurðardóttir á Kjark frá Kotlaugum
4. Freyja siff Busk Friðriksdottir á Fróða frá Kílhrauni
5. Hrafnhildur Sigurðardóttir á Kórónu frá Bjarnastöðum
Fjórgangur V2 * Ungmennaflokkur
1. Tristian Logi Lavender á Svarthöfða frá Efra-Skálateigi 1
2. Jessica Ósk Lavender á Mána frá Efra-Skálateigi 1
3. Edda Margrét Magnúsdóttir á Röðli frá Holtsmúla 1
4. Ida Maria Amanda Ljung á Dag frá Fossi
Fjórgangur V2 Fullorðinsflokkur – 2.flokkur
1. Iriis Cortlever á Ísey frá Auðsholtshjáleigu
2. Ragnheiður Jónsdóttir á Góa frá Vestra-Fíflholti
3. Magga S Brynjólfsdóttir á Ýmu frá Túnsbergi
4. Marie Louise Fogh Schougaard á Lóru frá Blesastöðum 1a
5. Berglind Ágústsdóttir á Valíant frá Efra-Langholti
Fjórgangur V2 Fullorðinsflokkur – 1.flokkur
1. Þorvaldur Logi Einarsson á Tangó frá Skriðu
2. Matthías Leó Matthíasson á Freistingu frá Auðsholtshjáleigu
3. Hinrik Þór Sigurðsson á Sjöfn frá Aðalbóli
4. Einar Logi Sigurgeirsson á Vígroða frá Kálfsstöðum
5. Ásdís Brynja Jónsdóttir á Hyllingu frá Hofi
