Fræðslunefnd

Svava Kristjánsdóttir

Berglind Ágústsdóttir

Kristín Erla Ingimarsdóttir

Marie Louise Fogh Schougaard

Hlutverk og verkefni fræðslunefndar

Hlutverk námskeiðsnefndar er að stuðla að öflugu og fjölbreyttu námskeiðs- og fræðslustarfi fyrir félagsmenn og koma til móts við ólíkar þarfir og áhugasvið innan hestamennskunnar.
Nefndin vinnur fyrir hönd stjórnar að skipulagningu námskeiða og fræðslu fyrir félagsmenn.

Fjölbreytt námskeiðsframboð
Nefndin skal leitast við að bjóða upp á fjölbreytt námskeið og fræðslu og gæta þess að framboðið verði ekki of einsleitt frá ári til árs. Þannig er stefnt að því að yfir veturinn séu í boði nokkur ólík námskeið sem höfða til mismunandi hópa, reynslu og áhugasviða.

Tímasetning og skipulag yfir árið
Meginþungi námskeiðahalds er að jafnaði eftir áramót og fram á vor, þegar mest eftirspurn er eftir reiðnámskeiðum.
Jafnframt er æskilegt að skoða möguleika á:
• sumarnámskeiði, meðal annars fyrir þá sem eru að taka hross á járn og hefja þjálfun eftir veturinn;
• sýnikennslu að hausti með reiðkennara eða öðrum fagmanni;
• fræðslufyrirlestri eða fræðslukvöldi um efni sem tengjast hestamennsku.